09.11.2005 11:22

Búningar farnir í prentun

Ég og Árni fórum niður í Henson í hádeginu og gengum frá gerð 14 búninga fyrir Hrafnana.

Þeir verða svartir með hvítum röndum á hliðunum og með svartar stuttbuxur í stíl, Logoið verður framan á hægra megin og svo númer leikmanns vinstra megin, svo aftan á verður númer leikmannsins með stórum stöfum. Búningarnir eru úr polyester.

Þetta kostar víst um 70.000 kr og hvet ég þá sem eru ekki búnir að borga (ekki margir) að borga sem fyrst.

Svo kom í ljós að við getum fengið upphitunartreyjur sem eru hvítar öðrum megin og svartar hinum megin á aðeins 1300 kall ca. Er einhver áhugi fyrir því ? Endilega setjið í athugasemdir.

Við fáum vonandi búningana fyrir næstu helgi, en alveg pottþétt fyrir fyrsta leikinn :)

Update 9.11.2005
Langflestir búnir að borga - meira að segja 6.600 í varasjóði vegna deildarinnar - það þýðir að við gætum niðurgreitt æfingabúninga um 440 kall per mann (þá kosta þeir ca 1000 kall á mann). Hvað segja menn um það ?

##countercode##