25.11.2005 23:21

Hrafnarnir-Hafnarmenn 32-61

Jæja, okkar fyrsta rassskelling er staðreynd.  Augljóslega margt sem þarf að skoða, ég ætla að nefna 3-4 atriði:
  1. Varnarleikur, við vorum að týna mönnum klaufalega sem skilaði sér í opnum layupum fyrir þá.  Þetta skrifast að einhverju leyti á að menn eru of stutt inná í einu.  Ég legg til 10 mínutna sessionir, ef menn eru búnir með pústið geta þeir fengið skiptingu en þetta væri til bóta almennt séð.
  2. Klaufalegir tapaðir boltar.  Stress er yfirleitt orsökin þar, horfum bara upp og slökum á.
  3. Fráköst.  Við tókum eitt (1!) varnarfrákast í fyrra hálfleik, enough said.
  4. Hraði.  Við erum að hjassast upp völlinn bæði í vörn og sókn, þetta verðum við að laga.  Bæði hraða og einbeitingu.  Keyra ákveðið á sinn stað á vellinum og byrja að taka sér stöðu sem fyrst.
Almennt held ég svo varðandi leiktímann að við séum með of breiðan hóp.  Hvernig líst mönnum á að dreifa sér á leiki svo það séu kannski 8-10 manns sem eru að spila í hverjum leik ... þetta verður einfaldlega of sundurlaust þegar menn spila svona lítið.  Viðbrögð óskast!

Annars skulum ekki tapa okkur í eymd og volæði, þrátt fyrir allt var þetta ansi solid lið sem við töpuðum fyrir.
Ef við spilum eins og við getum best í seinni umferðinni þá tökum við þá!

Jæja, enough rambling.  Sjáumst hressir og kátir á sunnudaginn og tökum vel á því.

Viðar
##countercode##