19.12.2005 10:28
Leikurinn á móti Moppunni
Vorum aðeins 6 sem mættum þetta skiptið (Hallur, Bjössi, Einar, Stígur, Hjalli, Árni) og þar af var Hallur meiddur á ökkla.
Sem betur fer voru þeir einnig aðeins 6 líka (til að byrja leikinn).
1 leikhluti
Við byrjuðum leikinn rosalega vel og komumst minnir mig í 10-2 og voru menn heitir , sérstaklega Bjössi, menn voru að stíga út og taka fráköst (loksins) og við hlunkarnir skiluðum okkar miðað við aðstæður. Þeir virtust frekar andlausir að mínu mati í fyrri hálfleik og var ég nokkuð vongóður um að við gætum unnið þennan leik.
2 leikhluti
Byrjuðum þennan leikhluta ekki vel, þeir virtust tvíeflast við komu eins liðsmanna sinna. Ekki hjálpaði að það fór allt í baklás hjá Bjössa og Árni þurfti að eyða allri sinni orku í að dekka þennan nýja mann. Það var þó ljós punktur að Hallur setti niður 3 eða 4 stökkskot í röð sem hélt okkur inn í leiknum.
Ég var sjálfur búinn að vera að hitta mjög illa, minnir að ég hafi verið 0-3 skotum þegar það var ekki langt eftir af leiknum og við vorum að dragast aftur úr. Þá var einn gaurinn í moppu sem ýtti aftan á mig og ég féll frekar illa niður. Við þetta vaknaði ég og náði að taka smá "starks" á þá, jafnaði leikinn með 3 stiga spjaldið ofan í þegar það voru eftir örfáar sekúndur. En það mátti engu muna að við töpuðum leiknum því þeir fengu 1 víti þegar það voru eftir (minnir mig) 3 sekúndur.
Overtime #1
Þarna voru menn orðnir þreyttir en furðulega komumst við 3 stigum yfir snemma í leikhlutanum, en þá hitti náunginn sem kom inn á í hálfleik 3 stiga skoti í smettið á okkur og fékk einnig villu. En með herkjum náðum við að halda í við þá, þökk sé Hjalla sem skoraði örugglega meirihlutann af stigunum okkar í þessum leikhluta og jafnaði minnir mig leikinn rétt fyrir lok leikhlutans.
Overtime #2
Eins og við var að búast þá var orkan gjörsamlega búin þegar þarna var komið, og þeir héldu áfram að mjólka sinn aðalgæja - sem einfaldlega vann okkur. Okkur vantaði einhvern til að geta núllað hann út (leifur).
En þrátt fyrir þetta voru margir góðir punktar í þessum leik og vil ég meina að við getum unnið þetta lið.
Maður leiksins
Moppa: Gæjinn sem kom inn á í hálfleik - 21 stig í seinni hálfleik
Hrafnarnir: Hjalli og Stígur - náðu að knýja fram framlengingar
Dómari:
Addi stóð sig ágætlega, en gerði svipað mörg mistök og leikmennirnir.