20.07.2006 09:01
20.7.2006 - Hverjir mæta
Vorum 5 sem mættum síðast:
- Hjalli
- Hrói
- Stígur
- Viðar
- Árni
06.07.2006 12:47
Æfingar
Þriðjudögum kl 20.30
Fimmtudögum kl 20.30
Niður í VÍ.
21.03.2006 15:24
Seinasti leikurinn
seinasti leikur ársins er framundan á föstudaginn og væri því gaman ef að sem flestir sæu sér fært að mæta...
leikurinn hefst klukkan 22:00 og er gegn Moppunni (sem við töpuðum naumlega fyrir í tvíframlengdum leik í fyrri umferðinni...)
sjáumst hressir á föstudaginn...
kv. Árni
15.02.2006 10:31
Dagskrá seinni umferðar
| Fös. 17. feb. |
| 21:00-22:00 Forseti - Moppa |
| 22:00-23:00 Hafnarmenn - Hrafnarnir |
| Fös. 3. mars |
| 21:00-22:00 Moppa - Valur |
| 22:00-23:00 Hrafnarnir - Forseti |
| Fös. 10. mars |
| 21:00-22:00 Hafnarmenn - Moppa |
| 22:00-23:00 Valur - Forseti |
|
Fös. 24. mars |
| 21:00-22:00 Valur - Hafnarmenn. |
| 22:00-23:00 Moppa - Hrafnarnir |
Næsti leikur okkar er semsagt á föstudaginn klukkan 22:00 gegn Hafnarmönnum...
Endilega látið vita ef þið komist ekki...
30.01.2006 11:12
Fyrsti leikur ársins...
Leikið verður klukkan 21:00 við Val o.b. í Smáranum...
Hverjir ætla svo að mæta???
03.01.2006 18:37
Póker
Bara svona létt, leggja kanski 500,- á "round"...
Endilega smellið inn athugasemd ef þið eruð "game"... ;)
27.12.2005 16:03
Bolti...
Vill einhver mótmæla því??? eða eru betri hugmyndir á borðinu??? (nb. Hallur kemst ekki á fimmtudaginn... en hann getur lánað okkur lykillinn ef það verða óskir um að færa boltann á þann dag...)
22.12.2005 22:52
Þorláksmessa 2005
Meira er hægt að lesa um þetta fallega boð hér...
20.12.2005 16:23
Jólabolti
En við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því, þar sem Hallur hefur fengið leyfi til að nota íþróttahúsið eins mikið og hann vill...
Þ.a.l. erum við að spá í að kíkja í körfu annað kveld klukkan hálf 9 (þ.e. miðvikudaginn 21/12/05 klukkan 20:30) upp í Versló...
Svo getum við jafnvel fundið einhverja tíma í næstu viku...
Endilega kvittið fyrir ykkur ef þið ætlið að mæta á morgun...
19.12.2005 10:28
Leikurinn á móti Moppunni
Vorum aðeins 6 sem mættum þetta skiptið (Hallur, Bjössi, Einar, Stígur, Hjalli, Árni) og þar af var Hallur meiddur á ökkla.
Sem betur fer voru þeir einnig aðeins 6 líka (til að byrja leikinn).
1 leikhluti
Við byrjuðum leikinn rosalega vel og komumst minnir mig í 10-2 og voru menn heitir , sérstaklega Bjössi, menn voru að stíga út og taka fráköst (loksins) og við hlunkarnir skiluðum okkar miðað við aðstæður. Þeir virtust frekar andlausir að mínu mati í fyrri hálfleik og var ég nokkuð vongóður um að við gætum unnið þennan leik.
2 leikhluti
Byrjuðum þennan leikhluta ekki vel, þeir virtust tvíeflast við komu eins liðsmanna sinna. Ekki hjálpaði að það fór allt í baklás hjá Bjössa og Árni þurfti að eyða allri sinni orku í að dekka þennan nýja mann. Það var þó ljós punktur að Hallur setti niður 3 eða 4 stökkskot í röð sem hélt okkur inn í leiknum.
Ég var sjálfur búinn að vera að hitta mjög illa, minnir að ég hafi verið 0-3 skotum þegar það var ekki langt eftir af leiknum og við vorum að dragast aftur úr. Þá var einn gaurinn í moppu sem ýtti aftan á mig og ég féll frekar illa niður. Við þetta vaknaði ég og náði að taka smá "starks" á þá, jafnaði leikinn með 3 stiga spjaldið ofan í þegar það voru eftir örfáar sekúndur. En það mátti engu muna að við töpuðum leiknum því þeir fengu 1 víti þegar það voru eftir (minnir mig) 3 sekúndur.
Overtime #1
Þarna voru menn orðnir þreyttir en furðulega komumst við 3 stigum yfir snemma í leikhlutanum, en þá hitti náunginn sem kom inn á í hálfleik 3 stiga skoti í smettið á okkur og fékk einnig villu. En með herkjum náðum við að halda í við þá, þökk sé Hjalla sem skoraði örugglega meirihlutann af stigunum okkar í þessum leikhluta og jafnaði minnir mig leikinn rétt fyrir lok leikhlutans.
Overtime #2
Eins og við var að búast þá var orkan gjörsamlega búin þegar þarna var komið, og þeir héldu áfram að mjólka sinn aðalgæja - sem einfaldlega vann okkur. Okkur vantaði einhvern til að geta núllað hann út (leifur).
En þrátt fyrir þetta voru margir góðir punktar í þessum leik og vil ég meina að við getum unnið þetta lið.
Maður leiksins
Moppa: Gæjinn sem kom inn á í hálfleik - 21 stig í seinni hálfleik
Hrafnarnir: Hjalli og Stígur - náðu að knýja fram framlengingar
Dómari:
Addi stóð sig ágætlega, en gerði svipað mörg mistök og leikmennirnir.
16.12.2005 12:45
Leikur í kvöld kl 21
Ég veit fyrir víst að eftirfarandi ætla að mæta (mjög líklega)
- hjalli
- stígur
- einar
- árni
Mæta ekki
- hrói
- sturla
- leifur