04.12.2005 20:52
Nýr tími + hugmynd
Endilega sem flestir að mæta næsta fimmtudag... við erum líka í fríi næsta föstudag...
Svo var Leifur að stinga upp á því að breytum aðeins villuforminu á æfingum og látum vörnina dæma... láta reyna á heiðarleika manna... hvernig lýst mönnum á það???
03.12.2005 12:17
Myndir frá leiknum í gær
Ég var að klára myndirnar frá leiknum í gær.. komnar í listann hér hægra megin.
Kv. Guðm. Arnar
02.12.2005 14:01
Leikur í kvöld kl 10 í smáranum
Minni alla á leikinn í kvöld kl 22 í Smáranum.
Menn hafa verið að tala um að borða saman fyrir leikinn, ég kemst því miður ekki.
Þeir sem koma ekki í kvöld:
- Leifur (tvíburar)
- Hjálmar
- Sturla
Munum ekki skipta inn á eins og síðast, heldur prófa nýjan stíl.
02.12.2005 14:00
Essen
Svör óskast sem fyrst svo hægt verði að panta borð (þ.e.a.s. ef einhver áhugi er fyrir hendi...)
28.11.2005 18:35
Kveldverður
Er einhver áhugi fyrir því að hittast á miðvikudag og kíkja á hlaðborð???
Endilega komið með hugmyndir um stað og stund.
25.11.2005 23:21
Hrafnarnir-Hafnarmenn 32-61
- Varnarleikur, við vorum að týna mönnum klaufalega sem skilaði sér í opnum layupum fyrir þá. Þetta skrifast að einhverju leyti á að menn eru of stutt inná í einu. Ég legg til 10 mínutna sessionir, ef menn eru búnir með pústið geta þeir fengið skiptingu en þetta væri til bóta almennt séð.
- Klaufalegir tapaðir boltar. Stress er yfirleitt orsökin þar, horfum bara upp og slökum á.
- Fráköst. Við tókum eitt (1!) varnarfrákast í fyrra hálfleik, enough said.
- Hraði. Við erum að hjassast upp völlinn bæði í vörn og
sókn, þetta verðum við að laga. Bæði hraða og einbeitingu.
Keyra ákveðið á sinn stað á vellinum og byrja að taka sér stöðu sem
fyrst.
Annars skulum ekki tapa okkur í eymd og volæði, þrátt fyrir allt var þetta ansi solid lið sem við töpuðum fyrir.
Ef við spilum eins og við getum best í seinni umferðinni þá tökum við þá!
Jæja, enough rambling. Sjáumst hressir og kátir á sunnudaginn og tökum vel á því.
Viðar
24.11.2005 11:18
Næstu leikir
25.11.2005
Hrafnarnir vs Hafnarmenn
klukkan 22 í Smáranum
02.12.2005
Hrafnarnir vs Forseti
klukkan 22 í Smáranum
09.12.2005
Hlé fyrir Hrafnarmenn
16.12.2005
Hrafnarnir vs Moppa
klukkan 21 í Smáranum
19.11.2005 09:59
40-28 - sigur í fyrsta leik !
Glæsilegur sigur Hrafnanna á OB-Valur er orðinn að veruleika.
Það góða við þetta er að við getum spilað mun betur en við gerðum í þessum leik :)
Við þurftum þó að kreista sigurinn út, því staðan var 25-24 okkur í vil seint í seinni leikhlutanum.
Það er vonandi að Hrói setji inn myndir, hann er sá eini sem kom með myndavél.
18.11.2005 10:18
Leikur í kvöld kl 10
Í kvöld er fyrsti leikurinn okkar.
Hann hefst kl. 22 í Smáranum.
Spurning um að hittast þar 21:30, hvað segja menn við því ?
Árni er með búningana.
16.11.2005 14:10
Búningarnir komnir í hús !
Gaman að sjá búningana frá Henson - logoið kom mjög vel út og þetta gekk allt vel.
Nú er leikur á föstudaginn kl 22 við OB-Valur, læt vita ef eitthvað er að frétta varðandi það.
Stígur
15.11.2005 11:20
Búningar tilbúnir á morgun
Fín æfing á sunnudaginn síðasta - en það er augljóst að við þurfum að nota toppstykkið betur.
Fáum víst búningana á morgun - svo er það bara GAME TIME á föstudaginn.
11.11.2005 13:41
Búningar, update
Það verður gaman að sjá búningana.
Ég get stolltur sagt að allir séu búnir að borga :) og eigum við 6.600 í varasjóði
09.11.2005 11:22
Búningar farnir í prentun
Ég og Árni fórum niður í Henson í hádeginu og gengum frá gerð 14 búninga fyrir Hrafnana.
Þeir verða svartir með hvítum röndum á hliðunum og með svartar stuttbuxur í stíl, Logoið verður framan á hægra megin og svo númer leikmanns vinstra megin, svo aftan á verður númer leikmannsins með stórum stöfum. Búningarnir eru úr polyester.
Þetta kostar víst um 70.000 kr og hvet ég þá sem eru ekki búnir að borga (ekki margir) að borga sem fyrst.
Svo kom í ljós að við getum fengið upphitunartreyjur sem eru hvítar öðrum megin og svartar hinum megin á aðeins 1300 kall ca. Er einhver áhugi fyrir því ? Endilega setjið í athugasemdir.
Við fáum vonandi búningana fyrir næstu helgi, en alveg pottþétt fyrir fyrsta leikinn :)
Update 9.11.2005
Langflestir búnir að borga - meira að segja 6.600 í varasjóði vegna deildarinnar - það þýðir að við gætum niðurgreitt æfingabúninga um 440 kall per mann (þá kosta þeir ca 1000 kall á mann). Hvað segja menn um það ?
07.11.2005 10:13
Búningar...
Ég #14
Leifur #6
Hrói #11
Haukur #10
Hjalli #13
Hallur #4
Kjartan #7
Viðar #8
Stígur #3???
Einar #???
Bjössi #???
Gummi #???
Gummi #???
Sturla #???
Ef ég fer með upplýsingarnar niðrí Henson í fyrramálið er möguleiki að búningarnir verði tilbúnnir á föstudaginn... annars verða þeir ekki tilbúnir fyrr en eftir helgi...
Best væri svo að allir greiddu 5.000,- kr. inn á reikninginn hans Stígs (sama reikning og fyrir mótsgjaldið...) fyrir búningana...
Kv. Árni
04.11.2005 16:49
Búningar
Verð: 5.000,- (bolur, stuttbuxur og merkingar á bol innifalið)
Litur: allt milli himins og jarðar... við getum í raun valið hvaða lit, eða litasamsetningu, sem við viljum....
Snið: bara eins og við viljum...
Endilega komið með hugmyndir um lit og snið á sunnudaginn...
Ætla ekki annars allir að mæta hressir kl. 14 á sunnudag???