Reglur
- Spilað er 2x 16mín. gangandi klukka. Síðustu 3. mín í seinni hálfleik er klukkan stoppuð eftir KKÍ reglum (útaf, villur, skoraða körfu o.sfrv.)
1x leikhlé er í seinni hálfleik.
- Engin skotklukka. Dómara er þó heimilt að hefja upphátt niðurtalningu úr 10sek telji hann að um tilraun til leiktafar sé að ræða.
- Skiptingar eru leyfðar í hvert sinn sem bolti er úr leik og er klukkan stöðvuð meðan það fer fram.
- 2x dómarar dæma hvern leik.
- 1x starfsmaður er á ritaraborðinu - KKÍ skýrsla er fyllt út (stig, víti og villur)
- Spilað er þvert á Smárann og eru leikir í gangi á báðum leikvöllum samtímis.
- Komi upp alvarleg atvik mun dómari kæra það til aganefndar utandeildarinnar, yfirmaður hennar er Gylfi Freyr Gröndal.
- Efsta lið í hvorum riðli við lok móts í vor mun keppa hreinan úrslitaleik í Smáranum á fullan völl með KKÍ reglum og 4x 10mín.
- Áætlað er að sá leikur fari fram að loknum leik mfl. kk í 1. deildinni. Að úrslitaleik loknum verði svo slegið til létts fagnaðar í veislusal Smárans og verðlaun afhent sigurvegurunum.
- 12x manns komast á skýrslu í hverjum leik. Ef bæði lið eru sammála um að bæta við 13x manni er það meinlaust af okkar hálfu.
##countercode##
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is